Krafist áframhaldandi gæsluvarðhalds

Lögreglan hefur óskað eftir því að karlmaðurinn sæti áfram gæsluvarðhaldi.
Lögreglan hefur óskað eftir því að karlmaðurinn sæti áfram gæsluvarðhaldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur gert kröfu um að karlmaður á sjötugsaldri verði áfram í gæsluvarðhaldi í tengslum við bruna sem varð á Bræðraborgarstíg í júní síðastliðnum, með þeim afleiðingum að þrír létust. 

Var óskað eftir gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna en rannsókn málsins er á lokametrunum, að sögn Karls Steinars Valssonar, yfirlögregluþjóns hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert