Mikið álag á móttöku leitarstöðvarinnar

Höfuðstöðvar Krabbameinsfélagsins.
Höfuðstöðvar Krabbameinsfélagsins. mbl.is/Árni Sæberg

Mikið álag er á móttöku leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins en þessu veldur mikil spurn eftir tímabókunum hjá stöðinni.

Á vef félagsins eru konur, sem pantað hafa tíma á netinu og ekki fengið bókunartíma sinn staðfestan, beðnar að sýna biðlund á meðan unnið sé úr öllum tímabókunum.

Sem stendur sé aðeins tekið við bókunum í síma 540-1919, kl. 8-15.30 alla virka daga nema föstudaga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert