Segja „óábyrgt“ að birta skjalið

Skjal sem Sjúkratryggingar Íslands fundu er varðar mælingar og markmið þjónustusamnings við Krabbameinsfélagið var ófullbúið vinnugagn. Í því er að finna misskilning og ranga hugtakanotkun. Embætti landlæknis segir óábyrgt að birta skjalið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis, Sjúkratryggingum Íslands og Krabbameinsfélagi Íslands.

Fulltrúar Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), Krabbameinsfélags Íslands (KÍ) og embættis landlæknis funduðu sameiginlega í dag til að fara yfir skjalið sem er níu blaðsíður. Það var unnið var í desember árið 2017 af greiningardeild Sjúkratrygginga og varðar mælingar og markmið þjónustusamnings við Krabbameinsfélagið. 

„Augljóst er að umrætt skjal er ófullbúið vinnugagn sem byggir á gögnum frá KÍ og samskiptum starfsmanna KÍ og SÍ. Í skjalinu má finna misskilning og ranga hugtakanotkun enda er krabbameinsskimun flókið viðfangsefni og túlkun efnisins krefst sérfræðiþekkingar,“ segir í tilkynningunni. 

Umrætt skjal var sent velferðarráðuneytinu í febrúar árið 2018 án þess að fram kæmi að um vinnugagn væri að ræða en skjalið hafði ekki verið sent Krabbameinsfélaginu til yfirlestrar áður en því var komið til ráðuneytisins.

Engar upplýsingar sem kalli á viðbrögð

„Aðilar eru sammála um að óábyrgt væri að birta skjalið án nánari skýringa og athugasemda af hálfu KÍ,“ segir í tilkynningunni. 

„Það er mat landlæknis eftir sameiginlega yfirferð með SÍ og KÍ að það séu engar upplýsingar í skjalinu sem kalla á viðbrögð heilbrigðisyfirvalda umfram þá skoðun sem þegar er hafin hjá embætti landlæknis.“

Eins og mbl.is hefur áður greint frá óskaði Krabbameinsfélagið eftir gögnum frá Sjúkratryggingum sem rökstyddu ummæli Tryggva Björns Stefánssonar læknis, sem sinnti á tímabili vinnu við gerð kröfulýsingar um krabbameinsskimanir sem aðkeyptur verktaki  Sjúkratrygginga, um að gæðaeft­ir­liti og gæðaskrán­ingu í leit­ar­starfi fé­lags­ins hefði verið veru­lega ábóta­vant. Gögnin bárust ekki og er forstjóra Sjúkratrygginga ekki kunnugt um að ummæli Tryggva byggist á gögnum frá Sjúkratryggingum.

Eins og áður hef­ur verið greint frá urðu mis­tök í grein­ingu sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu árið 2018 sem leiddu til þess að kona, sem nú er með ólækn­andi krabba­mein, greind­ist ekki með frumu­breyt­ing­ar þegar hún fór í leg­háls­skimun hjá leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins. Lögmaður kon­unn­ar hef­ur fengið fleiri sam­bæri­leg mál inn á sitt borð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert