Þyrla Gæslunnar kölluð út vegna bílslyss

Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. mbl.is/Alfons

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan hálfþrjú síðdegis í dag vegna bílslyss á Snæfellsnesi. 

Ekki fengust frekari upplýsingar að svo stöddu. 

Að sögn fréttaritara mbl.is á Snæfellsnesi varð slysið við Saxhóla. Útnesvegi við Saxhóla hefur verið lokað vegna slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert