Vann 62 milljónir

Frá leik Liverpool og Leeds í ensku deildinni sem fór …
Frá leik Liverpool og Leeds í ensku deildinni sem fór fram á laugardag. AFP

Íslendingur vann tæplega 62 milljónir í getraunum í gærkvöldi og er þetta stærsti vinningur sem Íslendingur hefur unnið í getraunum, að því er Íslensk getspá greinir frá. 

„Mikið var um óvænt úrslit á sunnudagsseðli getrauna og var Íslendingurinn sá eini í heiminum sem var með alla leikina 13 rétta en miðinn var keyptur í sölukassa með sjálfvali. Fyrir 13 rétta voru 52 milljónir í vinning en miðahafinn var einnig með fjölda aukavinninga sem færir honum tæplega 62 skattfrjálsar milljónir,“ segir í tilkynningunni

Eigandi miðans hefur ekki ennþá gefið sig fram með miðann góða og hvetjum við því alla sem keyptu miða til að skoða hann vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert