Kannabis, sterar og hnífur

mbl.is/Árni Torfason

Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft afskipti af nokkrum einstaklingum á síðustu dögum vegna fíkniefnamála. Kannabisræktun var stöðvuð í Njarðvík. Plönturnar voru haldlagðar til eyðingar ásamt tækjum og tólum til ræktunarinnar.

Karlmaður sem handtekinn var vegna gruns um innbrot og eignaspjöll reyndist við öryggisleit á lögreglustöð hafa í fórum sínum meint fíkniefni og sprautur. Þá var farið í húsleit að fenginni heimild í íbúðarhúsnæði. Þar fundust kannabisefni, sterar og hnífur sem húsráðandi gekkst við að eiga. Hald var lagt á efnin og hnífinn að því er segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert