Þessi sækjast eftir lögreglustjóraembætti

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari er ein þeirra sem sækir um embætti …
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari er ein þeirra sem sækir um embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. mbl.is/Árni Sæberg

Kolbrún Benediktsdóttir og Hulda Elsa Björgvinsdóttir eru meðal umsækjenda um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Arndís Bára Ingimarsdóttir og Grímur Hergeirsson eru meðal umsækjenda um embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum.

Umsóknarfrestur um tvö embætti lögreglustjóra rann út 14. september. Umsækjendur um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru fimm talsins, en sex sóttu um embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum.

Umsækjendur um embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum:

  • Daniel Johnson – fjórði æðsti herlögreglumaður svissneska ríkisins G1(USC1) undir herlögreglustjóra Sviss
  • Hulda Elsa Björgvinsdóttir – sviðsstjóri ákærusviðs LRH
  • Kolbrún Benediktsdóttir – varahéraðssaksóknari
  • Súsanna Björg Fróðadóttir – aðstoðarsaksóknari LSS
  • Úlfar Lúðvíksson – lögreglustjórinn á Vesturlandi

Umsækjendur um embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum:

  • Arndís Bára Ingimarsdóttir – settur lögreglustjóri í Vestmannaeyjum
  • Daníel Johnson – fjórði æðsti herlögreglumaður svissneska ríkisins G1(USC1) undir herlögreglustjóra Sviss
  • Grímur Hergeirsson – staðgengill lögreglustjóra á Suðurlandi
  • Helgi Jensson – aðstoðarsaksóknari, lögreglustjórinn á Austurlandi
  • Kristmundur Stefán Einarsson – aðstoðarsaksóknari LRH
  • Logi Kjartansson – lögfræðingur
  • Sigurður Hólmar Kristjánsson – saksóknarfulltrúi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert