Facebooksíða hefur nú verið tekin í gagnið þar sem notendum veitingaþjónustu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar gefst tækifæri á því að skoða mynd af máltíð hvers dag. Um níuhundruð máltíðir á dag eru afgreiddar úr framleiðslueldhúsi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar á Vitatorgi.
„Þetta snýst fyrst og fremst um að bæta þjónustuna við notendur og aðstandendur þeirra. Við viljum vera sýnilegri gagnvart fólkinu,“ segir Eyjólfur Einar Elíasson, forstöðumaður framleiðslueldhúss velferðarsviðs.
Í dag var boðið upp á lambakjöt líkt og sjá má á færslu dagsins á facebooksíðunni.
Góðan og blessaðan daginn og gleðilegan föstudag. Í dag bjóðum við upp á lambakjöt með brúnni sósu, rauðkáli og sykurbrúnuðum kartöflum.
Posted by Framleiðslueldhús velferðarsviðs on Föstudagur, 18. september 2020
Fyrir skömmu var fjallað um það í fjölmiðlum að kvartað hefði verið undan slæmri framreiðslu matar fyrir eldri borgara sem átti að hafa komið frá eldhúsi velferðarsviðs á Vitatorgi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á borgarstjórnarfundi á þriðjudag sagði Dagur B. Eggertsson að um væri að ræða mynd af matarleifum. Hann minnti þá á áðurnefnda facebooksíðu.