Milljónamæringurinn gaf sig fram

Maður sem vann 62 milljónir í sunnudagsseðli Getrauna hefur gefið sig fram, en þetta er stærsti vinningur í getraunum sem hefur komið til landsins.

„Vinningshafinn tekur þátt í getraunum í hverri viku, velur táknin venjulega sjálfur með misjöfnum árangri, og styrkir í leiðinni sitt íþróttafélag. Í þetta skiptið leist honum ekkert á seðilinn og ákvað því að taka sjálfval með þessum stórkostlega árangri,“ segir í tilkynningu frá Íslenskum getraunum.

Lítið veitt næstu daga

Þá segir, að vinningshafinn hafi verið staddur í laxveiði þegar hann athugaði með miðann en hann „hafði brugðið sér á klósettið. Hann var inni á klósettinu með símann og miðann góða og datt í hug að kanna úrslit helgarinnar. Þar komst hann að því að hann var einn með 13 rétta og hafði hirt allan pottinn. Það var víst lítið veitt næstu daga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert