Neyðarstjórn Hrafnistu herðir reglur

Reglurnar hafa þegar tekið gildi. Mynd úr safni.
Reglurnar hafa þegar tekið gildi. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Í ljósi fjölgunar nýrra COVID-19 smita í samfélaginu hefur neyðarstjórn Hrafnistu tekið ákvörðun um að herða heimsóknarreglur á hjúkrunarheimilum frá og með deginum í dag.

Aðeins einn gestur má heimsækja hvern íbúa og heimilt verður að skipta um heimsóknargest á sjö daga fresti. Reglurnar verða endurskoðaðar eftir þörfum. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var til aðstandenda.

Heimsóknarreglur eru eftirfarandi:

- Aðeins einn gestur má heimsækja hvern íbúa. Heimilt er að skipta um heimsóknargest á sjö daga fresti. Heimsóknartími er frá mismunandi milli heimila.

- Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf að fá leyfi vaktstjóra deildar.

- Viðkomandi gestur þarf að spritta hendur um leið og komið er inn, í upphafi heimsóknar.

- Við biðjum ykkur um að fara beint inn á herbergi til íbúans og ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi biðjið þá starfsfólk um að sækja hann, ekki gera það sjálf.

- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.

- Að heimsókn lokinni farið þá beint út án þess að stoppa og spjalla á leiðinni. Vinsamlegast sprittið hendur við brottför.

- Heimilt er að íbúi fari út í göngutúr/bíltúr með heimsóknargesti sínum en hitti ekki aðra á meðan þessar takmarkanir eru í gildi.

Þá eru gestir beðnir um að hafa eftirfarandi reglur í huga:

- Ekki koma í heimsókn ef þú ert í einangrun eða sóttkví

- Ekki koma í heimsókn ef þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.

- Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl).

- Ekki koma í heimsókn ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert