Sex ára dómur fyrir brot gegn eiginkonu og syni

Hæstiréttur Íslands.
Hæstiréttur Íslands. mbl.is/Jón Pétur

Hæstiréttur Íslands hefur dæmt karlmann í sex ára fangelsi fyrir tvö kynferðisbrot gegn þáverandi eiginkonu sinni, blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot gagnvart syni sínum og fyrir rúmlega 950 brot gegn nálgunarbanni.

Einnig var hann dæmdur til að greiða þáverandi eiginkonu þrjár milljónir króna í miskabætur.

Dómurinn þyngdur um þrjú ár

Maðurinn hlaut þriggja ára dóm í Landsrétti og var gert að greiða konunni tvær milljónir króna í bætur. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar og krafðist þess að refsing mannsins yrði þyngd. 

Maðurinn krafðist ómerkingar hins áfrýjaða dóms á þeim grunni að Landsrétti hafi borið að leggja fram framburð sonar hans til grundvallar við sönnunarmatið. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ekki hefði komið fram í þingbók að gætt hefði verið ákvæðis um meðferð sakamála um rétt vitnis til að skorast undan að gefa skýrslu vegna skyldleika við ákærða. Af þeim sökum var ekki byggt á skýrslu hans. Maðurinn var engu að síður sakfelldur fyrir þann ákærulið á grundvelli framburðar annarra vitna og gagna frá Barnahúsi.

Í dómi Hæstaréttar var talið að Landsréttur hefði réttilega komist að þeirri niðurstöðu að annmarki hefði verið á skýrslutökunni af fyrrnefndum sökum. Tekið var fram að þegar vitni hefði ekki gefist kostur á að skorast undan því að gefa skýrslu og það hefði tjáð sig um málsatvik í hag ákærða yrði skýrslan lögð til grundvallar við sönnunarmatið.

Af framburði sonar hans var talið fráleitt að hann væri ákærða í hag heldur þvert á móti. Vísað var til þess að það hefði síður en svo komið að sök fyrir ákærða að Landsréttur hefði ekki byggt á skýrslunni og því var ómerkingarkröfunni hafnað.

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að ásetningur mannsins til þeirra fjölmörgu brota sem hann var sakfelldur fyrir var styrkur og einbeittur og að annað nauðgunarbrotið hefði verið framið á sérstaklega meiðandi hátt.

Aftur á móti var talið að lagaheimild skorti til að taka upp pólska skilorðsdóma sem maðurinn hafði hlotið. Þá var það einnig til refsiþyngingar að brotin beindust gegn eiginkonu hans og syni þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert