Tvö frumvörp til nýrra jafnréttislaga

„Ný jafnréttislög eru tímabær og þörf í ljósi þeirrar miklu …
„Ný jafnréttislög eru tímabær og þörf í ljósi þeirrar miklu þróunar sem orðið hefur í jafnréttismálum frá setningu jafnréttislaganna árið 2008,“ segir forsætisráðherra. mbl.is/Arnþór

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði fram tvö frumvörp til nýrra jafnréttislaga í ríkisstjórn í morgun.

Annars vegar frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og hins vegar frumvarp til laga um stjórnsýslu jafnréttismála. Síðarnefnda frumvarpið lýtur að skipulagi á þeirri stjórnsýslu sem lögð er til að gildi á sviði jafnréttismála, að því er segir í tilkynningu.

„Ný jafnréttislög eru tímabær og þörf í ljósi þeirrar miklu þróunar sem orðið hefur í jafnréttismálum frá setningu jafnréttislaganna árið 2008. Jafnréttismálin hafa öðlast sífellt meira vægi bæði hér á landi og á heimsvísu og það er nauðsynlegt að við horfum stöðugt til þess sem betur má fara. Í þessum nýju lögum má sjá margar þarfar breytingar. Næsta skref er að þingið taki frumvörpin til meðferðar og ég hlakka til að fylgjast með þeirri vinnu,“ segir Katrín í tilkynningunni.

Markmið fyrrnefnda frumvarpsins er að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli kyns og koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnum tækifærum kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Tillögurnar ná meðal annars til starfa Jafnréttisstofu og kærunefndar jafnréttismála. Markmið þess frumvarps er að efla stjórnsýslu jafnréttismála og að jöfn meðferð í víðum skilningi njóti betri verndar.

Í fyrsta skipti bann við fjölþættri mismunun

Í fyrsta skiptið í íslenskum rétti er kveðið á um bann við fjölþættri mismunun, þ.e. þegar manneskju er mismunað á grundvelli fleiri en einnar mismununarástæðu sem verndaðar eru í löggjöf um jafnréttismál. Slíkt ákvæði veitir meðal annarra fötluðum konum og konum af erlendum uppruna aukna vernd.

Stjórnarráðið við Lækjargötu.
Stjórnarráðið við Lækjargötu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þá er í fyrsta skiptið í heild sinni gert ráð fyrir þremur hópum fólks með mismunandi kynskráningu, þ.e. konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Af þeirri ástæðu er lagt til að heiti laganna verði lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og er þetta í fyrsta sinn síðan 1976 sem lagt er til nýtt heiti á lögunum.

Í frumvörpunum er skerpt á ákvæðum um jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu og gerð grein fyrir hlutverki Jafnréttisstofu við framkvæmd löggjafar um jafnréttismál með skýrari hætti en áður. Jafnframt eru lagðar til breytingar á ákvæðum sem varða kærunefnd jafnréttismála þar sem meðal annars verði aukið við kröfur um sérþekkingu innan kærunefndarinnar á jafnréttismálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert