Upplýsingafundur almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis hófst kl. 14. Upptöku frá fundinum má sjá hér fyrir neðan.
Á fundinum fóru þeir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19-faraldursins hér á landi, en í gær greindist mesti fjöldi smita á landinu frá 1. apríl, eða 75 smit innanlands.