Lægð á leiðinni með vætu og hvassviðri

Veðurspáin í dag er ekkert voðalega spennandi. Veðurstofan gerir ráð …
Veðurspáin í dag er ekkert voðalega spennandi. Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan lægð með hvassviðri og vætu. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Ört dýpkandi lægð nálgast nú landið úr suðvestri með tilheyrandi vætu og hvassviðri. Í dag mun ganga í suðvestan- og vestanátt 13-20 m/s og bætir svo í úrkomu. Þetta kemur fram í spá Veðurstofunnar.

Lægðin fer norðaustur fyrir land í kvöld og mun þá draga úr vindi og úrkomu, en hvessa austantil á landinu. Þá mun úrkoman breytast í snjókomu á fjallvegum um landið norðanvert. Spáð er 4 til 12 stiga hita, en að það kólni með kvöldinu.

Á morgun má gera ráð fyrir rólegra veðri, suðvestlægri eða breytilegri átt 5-13 m/s og skúrum, en sums staðar éljum eða slydduéljum norðanlands.

Segir í hugleiðingum veðurfræðings að það verði svalt miðað við árstíma og hiti á bilinu 1 til 8 stig, hlýjast syðst á landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert