Tveir nemendur FÁ smitaðir

Nær ómögulegt er talið að samnemendur eða kennarar hafi smitast …
Nær ómögulegt er talið að samnemendur eða kennarar hafi smitast af nemendunum tveimur, að því er segir í pósti frá skólameistara. Ljósmynd/FÁ

Tveir nemendur Fjölbrautaskólans við Ármúla hafa greinst með kórónuveiruna. Þetta kemur fram í pósti sem skólameistari sendi nemendum og forráðamönnum í dag. Nemendurnir eru vinir en hafa lítið verið í nánum samskiptum við aðra nemendur og talið nær ómögulegt að skólasystkini þeirra eða kennarar hafi smitast, að því er segir í póstinum. Fjórir nemendur hafa engu að síður fengið boð um að fara í sóttkví, sem og kennarar sem kenndu nemendunum tveimur.

Þá verður kennsla í skólanum rafræn alla næstu viku, en skólanum verður lokað fyrir nemendum næstu níu daga.

Í samtali við mbl.is segir Kristrún Birgisdóttir, aðstoðarskólameistari FÁ, að þegar hafi verið stefnt að því að færa kennslu rafrænt áður en smitin komu upp. „Við vorum eiginlega búin að taka ákvörðun um þetta enda er nemendasamsetning þannig að við erum með tiltölulega háan meðalaldur.“

Skólameistarar hafi um helgina átt í nánu samstarfi við sóttvarnayfirvöld, þ.m.t. smitrakningarteymi almannavarna, og unnið samkvæmt leiðbeiningum þeirra að úrvinnslu málsins. Nemendur sem finna til minnstu einkenna eru hvattir til að bóka skimun á heilsuvera.is. 

Pósturinn í heild sinni:

Ágætu nemendur og forráðamenn.

Komið hefur í ljós að tveir nemendur við skólann hafa greinst með Covid-19. Umræddir nemendur tengjast vinaböndum og hafa lítið verið í nánum samskiptum við aðra nemendur skólans. Skólameistarar hafa um helgina unnið í nánu samstarfi við sóttvarnayfirvöld, þ.m.t. smitrakningarteymi almannavarna, og unnið er samkvæmt þeirra leiðbeiningum að úrvinnslu málsins. Vegna þeirra sóttvarna sem viðhafðar hafa verið í skólanum er talið nær ómögulegt að samnemendur eða kennarar viðkomandi nemenda hafi smitast en við hvetjum alla nemendur sem finna til minnstu einkenna að hafa samband við www.heilsuvera.is til að bóka skimun.

Líkt og áður hefur komið fram í pósti fer kennsla fram í fjarnámi í Teams samkvæmt stundatöflu í næstu viku. Við minnum á að allir þurfa að mæta í þessar Teams-kennslustundir, svo og fylgjast vel með skilaboðum sem kunna að koma frá kennurum í einstaka áföngum. Þar sem skólanum verður lokað fyrir nemendum í níu daga (helgar meðtaldar) eru góðar líkur á því að við náum að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu á þessu einstaka smiti og þar með getum við hafið eðlilegt skólastarf að nýju sem allra, allra fyrst. 

Við hvetjum nemendur til að stunda námið af kappi og fylgjast vel með fréttum frá skólanum næstu daga.

Með góðri kveðju,

Magnús Ingvason, skólameistari,

Kristrún Birgisdóttir, aðstoðarskólameistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert