40 kærðir fyrir hraðakstur

Fjörutíu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku. Helmingur þeirra var mældur á þjóðvegi 1 við Vík og Kirkjubæjarklaustur, einn á Mýrum vestan Hafnar í Hornafirði, sjö í Rangárþingi og Ásahreppi og tólf vestan Þjórsár. 

Þetta kemur fram í frétt lögreglunnar. 

Aðfaranótt 20. september var farið inn í ólæsta bíla við veiðihús við Rangárstíg vestan Hellu. Rótað var í bílunum og einhverjum fjármunum stolið. Lögregla hvetur þá sem hafa vitneskju um málið til að koma upplýsingum á framfæri við lögreglu. 

Þá var í síðustu viku 21 stórt ökutæki skoðað samkvæmt vegaskoðun. Flest ökutækjanna voru í góðu lagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert