Bakvarðasveitin endurvakin

Í ljósi þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga er …
Í ljósi þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga er bakvarðasveitin nú endurvakin og er því óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á skrá sem er reiðubúið að hlaupa í skarðið ef á reynir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heilbrigðisyfirvöld óska eftir liðsinni heilbrigðisstarfsfólks í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að koma tímabundið til starfa í heilbrigðisþjónustunni með skömmum fyrirvara, hvort heldur í fullt starf, hlutastarf eða í tímavinnu, eftir því sem aðstæður leyfa.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar var sett á fót í upphafi COVID-19 faraldursins í vor þegar ljóst var að mikilvægar heilbrigðisstofnanir gætu lent í mönnunarvanda vegna veikindafjarvista starfsfólks eða fjarvista vegna sóttkvíar. Þetta fyrirkomulag gaf góða raun og gerði heilbrigðisstofnunum kleift að manna í stöður með hraði þegar á þurfti að halda.

„Í ljósi þess hvernig faraldurinn hefur þróast síðustu daga er bakvarðasveitin nú endurvakin og er hér með óskað eftir heilbrigðisstarfsfólki á skrá sem er reiðubúið að hlaupa í skarðið ef á reynir, segir ennfremur. 

Þann 10. mars sl. undirrituðu Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, heilbrigðisráðherra, landlæknir, sóttvarnalæknir og ríkislögreglustjóri yfirlýsingu um bakvarðasveit heilbrigðisþjónustunnar. Fljótlega bættust fleiri félög heilbrigðisstétta í hópinn,“ segir í tilkynningu. 

Sjá nánar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert