Það stefnir í þokkalegt ár hjá íslensku gæsastofnunum

Dr. Arnór með grágæs sem ber tæki sem skráir staðsetninguna.
Dr. Arnór með grágæs sem ber tæki sem skráir staðsetninguna. mbl.is/Jón Sigurðsson

„Það má reikna með því að gæsastofnarnir séu í alveg þokkalegu standi, mér sýnist stefna í ágætis ár,“ sagði dr. Arnór Þórir Sigfússon dýravistfræðingur. Hann er einn helsti gæsasérfræðingur landsins.

Nýjar tölur úr gæsatalningum í Bretlandi í haust eru væntanlegar í byrjun október, sem er seinna en venjulega. Ástæða seinkunarinnar er kórónuveirufaraldurinn. Þeir sem ganga frá niðurstöðunum hafa ekki verið í fullri vinnu undanfarið.

Margar gæsir bera nú senditæki sem skrá ferðir þeirra. Arnór sagði að merktar heiðagæsir séu byrjaðar að yfirgefa landið en engin grágæsanna. Merktir helsingjar halda sig enn á sínum stað. Spáð er norðanátt og þá getur heiðagæsin farið að fara.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert