Verði að byggja nýtt hús ef uppfylla eigi kröfur

Allir innan starfshópsins voru sammála um Laugardal sem fyrsta val …
Allir innan starfshópsins voru sammála um Laugardal sem fyrsta val fyrir staðsetningu Þjóðarleikvangs. Hér má sjá Laugardalshöll. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

„Engin mannvirki á Íslandi uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til sérsambanda vegna alþjóðlegra keppna eða landsleikja í handknattleik og körfuknattleik. Til að uppfylla alþjóðlegar kröfur verður að byggja nýtt mannvirki.“

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps um þjóðarleikvang fyrir inniíþróttir.

Allir innan starfshópsins voru sammála um Laugardal sem fyrsta val fyrir staðsetningu Þjóðarleikvangs.

„Mikilvægast að mati starfshópsins er að mannvirkið nýtist fyrst og fremst sem íþróttahús enda yrði það byggt sem þjóðarleikvangur. Ef horft er til möguleika á margþættri notkun hússins mun það auka tekjumöguleika við rekstur. Þá mun slíkt mannvirki vera hvatning til almennrar lýðheilsu og gefa öllum tækifæri til að stunda hreyfingu. Þá er horft til þess að mannvirkið geti hýst stóra tónleika eða aðra menningarviðburði.“

Næst á dagskrá að „grípa skófluna“

Mennta- og menningarmálaráðherra skipaði umræddan starfshóp og var markmið hans að afla upplýsinga um kröfur sem gerðar eru til mannvirkja sem hýsa alþjóðlega leiki og mót auk þess að greina þarfir fyrir slíkt mannvirki hérlendis. Í starfshópinn voru skipaðir fulltrúar úr mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auk fulltrúa Handknattleikssambands Íslands og Körfuknattleikssambands Íslands.

„Við horfum til þess að efla mjög innviðafjárfestingar og nú hafa starfshópar skilað greiningu á ólíkum sviðsmyndum fyrir bæði inniíþróttir og knattspyrnu. Stór hluti undirbúningsvinnu er kominn vel á veg og mikilvægt að huga að næstu skrefum. Fram undan er að tryggja fjármögnun og samvinnu við okkar helstu samstarfsaðila, ráðast í hönnun og grípa skófluna og byggja framtíðarleikvanga fyrir landslið Íslendinga, íþróttaunnendur og iðkendur á öllum aldri,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í tilkynningu.

„Starfshópurinn aflaði gagna frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og þeim sérsamböndum sem mestra hagsmuna hafa að gæta við nýtingu þjóðarleikvangs. Skoðaðar voru alþjóðlegar kröfur sem eiga við um íþróttamannvirki í handknattleik og körfuknattleik og einnig skoðuð greining ÍSÍ og sérsambanda um æfingaþörf landsliða Íslands í öllum aldursflokkum helstu boltagreina auk fimleika. Verkís verkfræðistofa var fengin til þess að gera kostnaðarmat á byggingu mannvirkis ásamt því að leggja mat á rekstrarkostnað, þar sem mið var tekið af nýreistri íþróttahöll í Þrándheimi í Noregi sem tekur 8600 manns í sæti“, segir í sömu tilkynningu um starfshópinn.

Hann mun starfa áfram og gera nákvæmari greiningu á rekstri og tekjumöguleikum fyrir þjóðarleikvang inniíþrótta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert