Fannhvít jörð á Möðrudalsöræfum

Þessi mynd var tekin efst í Jökuldalnum hjá afleggjaranum að …
Þessi mynd var tekin efst í Jökuldalnum hjá afleggjaranum að Sænautarseli. mbl.is/Þorgeir

Fannhvít jörð var á Möðrudalsöræfum þegar ljósmyndari mbl.is var þar á ferðinni í morgun.

Meðfylgjandi mynd var tekin efst í Jökuldalnum hjá afleggjaranum að Sænautarseli.

Í athugasemdum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands kemur fram að það bæti í úrkomu á Norðurlandi í kvöld og að snjóað gæti talsvert niður undir sjávarmál. Fyrir vikið gætu akstursskilyrði orðið erfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert