Maðurinn sem fannst látinn í Breiðholti, neðan Erluhóla, 21. ágúst sl. hét Örn Ingólfsson, 83 ára.
Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þakkar kennslanefnd ríkislögreglustjóra fyrir veitta aðstoð við rannsókn málsins, segir ennfremur í tilkynningu.