Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í gær að beiðni lögreglunnar vegna sprengikúlu úr seinna stríði sem fannst við línuveg á Sandskeiði. Sprengikúlan lá undir þremur háspennulínum sem liggja til höfuðborgarsvæðisins.
Vegna staðsetningar sprengikúlunnar þótti öruggast að færa hana úr stað til að koma í veg fyrir tjón á háspennilínunum, segir Gæslan á Facebook.
„Þegar virk sprengikúla er færð úr stað er mikilvægt að það sé gert af þrautþjálfuðum sprengjusérfræðingum sem hafa sérhæfðan búnað til verksins. Óskað var eftir sjúkrabíl frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu af öryggisástæðum eins og alltaf er gert ef færa þarf sprengju sem þessa. Sprengikúlan var færð á öruggan stað og sprengd í kjölfarið,“ segir í tilkynningunni.
Tekið er fram, að eyðing sprengikúlunnar hafi gengið vel líkt og samstarf Landhelgisgæslunnar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.
Séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á sjötta tímanum í gær að beiðni lögreglunnar...
Posted by Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard on Miðvikudagur, 23. september 2020