Birtir sýnishorn af símtölum úr ferðaþjónustunni

Ferðamenn við Strokk í Haukadal.
Ferðamenn við Strokk í Haukadal. mbl.is/Árni Sæberg

Gífurleg verðmæti eru fólgin í að lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu nái að lifa veturinn og rísa upp að nýju á næsta ári.

Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Hann vekur máls á þessu á Facebook og reifar nokkrar örsögur úr ferðaþjónustunni þessa dagana með því að birta sýnishorn af þeim símtölum sem hann segist fá á hverjum degi:

„Leiðsögumaður sem rekur lítið ferðaþjónustufyrirtæki með konunni sinni og þurfti að fara á atvinnuleysisbætur strax í vor datt af tekjutengdu bótunum í lok ágúst. Hann fær ekki framlengingu tekjutengdu bótanna úr þremur í sex mánuði því að þær gilda bara frá 1. september, nokkrum dögum eftir að hann datt af þeim,“ skrifar Jóhannes.

Lækkuðu laun sín og fá því skertar bætur

„Hjón sem reka lítið jeppaferðafyrirtæki á Suðurlandi sjá fram á að missa eigur fyrirtækisins og vera tekjulaus á atvinnuleysisbótum í vetur. Fyrirtækið sem hefur staðið undir lifibrauði fjölskyldunnar er án aðstoðar líklega búið að vera. Heimili fjölskyldunnar er veðsett fyrir fjárfestingum fyrirtækisins. Þau vita ekki hvað tekur við.

Hjón sem reka lítið gistiheimili á landsbyggðinni lækkuðu sín eigin laun verulega strax í vor til að geta greitt starfsfólkinu sínu full laun samkvæmt samningum. Þau svo þurftu að segja fólki upp og fara sjálf á atvinnuleysisbætur í ágúst - en af því þau voru búin að lækka launin sín þá eiga þau mjög skertan bótarétt - fá ekki nema um 100 þúsund krónur hvort á mánuði. Þau vita ekki hvernig þau eiga að komast í gegn um veturinn. Þetta er að gerast í sambærilegum fjölskyldufyrirtækjum um allt land.

Hjón, komin að eftirlaunaaldri, sem reka lítið fjölskylduhótel fjarri höfuðborginni sjá fram á að fyrirtækið muni líklega verða gjaldþrota og muni þá soga eignir þeirra með sér ofan í gjaldþrotið. Þau áttu innan við 200 þúsund krónur á bankareikningi um síðustu mánaðarmót,“ skrifar Jóhannes og bætir við:

„Þetta fólk er ferðaþjónustan. Þau og mikill fjöldi annarra sem er núna í sömu stöðu þarf aðstoð.“

Byggt upp ný tækifæri og bætt lífskjör á landsbyggðinni

Bendir hann á að 86% af öllum ferðaþjónustufyrirtækjum séu svona fyrirtæki, þ.e. lítil fyrirtæki með innan við 10 starfsmenn.

„Þetta eru fyrirtækin sem hafa byggt upp ný atvinnutækifæri og bætt lífskjör fólks á landsbyggðinni. Þetta er fólkið sem tók frumkvæði og lagði eignir fjölskyldunnar undir til að búa til eitthvað nýtt og skapa verðmæti fyrir sig, nágranna sína og samfélagið. Það liggja gífurleg verðmæti fyrir okkur öll í því að þau nái að lifa veturinn og rísa upp á ný á næsta ári.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert