Khedr-fjölskyldan fær dvalarleyfi

Hluti Khedr-fjölskyldunnar, sem senda átti úr landi.
Hluti Khedr-fjölskyldunnar, sem senda átti úr landi. Ljósmynd/Sema Erla Serdar

Egypska Khedr-fjölskyldan hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmanni fjölskyldunnar.

Í henni segir að kærunefnd útlendingamála fallist á sjónarmið fjölskyldunnar um endurupptöku.

Átti að fara úr landi 16. september

Stoðdeild rík­is­lög­reglu­stjóra ósk­aði á mánudag eft­ir upp­lýs­ing­um um ferðir foreldranna beggja og fjögurra barna þeirra.

Til stóð að deildin myndi fylgja fjöl­skyld­unni úr landi þann 16. sept­em­ber, eft­ir úr­sk­urð Útlend­inga­stofn­un­ar um frá­vís­un frá Íslandi.

Fjöl­skyld­an var ekki á fyr­ir­framákveðnum stað þar stoðdeild hugðist fylgja henni úr landi, og hefur brottvísun hennar verið mikið mótmælt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert