Menntaskólanemar sigruðu í alþjóðlegri keppni

Axel Bjarkar, Hálfdán Helgi og Sölvi Bjartur við verðlaunaafhendinguna í …
Axel Bjarkar, Hálfdán Helgi og Sölvi Bjartur við verðlaunaafhendinguna í vor þegar þeir unnu innlendu keppnina. Ljósmynd/Landvernd

Heimildarmyndin Is there a solution to internet pollution, sem þrír íslenskir menntaskólanemar stóðu að lenti í fyrsta sæti í alþjóðlegri keppni ungra um­hverf­is­frétta­manna (YRE). Myndin hafði áður sigrað í innanlandskeppni Landverndar en þar hét hún Mengun með miðlum.

Hálf­dán Helgi Matth­ías­son, Axel Bjark­ar Sig­ur­jóns­son og Sölvi Bjartur Ingólfsson, nemar í Tækniskólanum, stóðu að gerð myndarinnar. Hún sigraði fyrst innanlandskeppni sem Landvernd blés til. 

Annar Íslendingur gerði það gott í alþjóðlegu keppninni en það er Ásdís Rós Þórisdóttir sem stundar nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla. Hún hlaut heiðursverðlaun fyrir ljósmynd sína „Congratulations humanity“. 

Strákarnir lentu í fyrsta sæti í flokki heimildarmynda. Þeir hafa nú einnig verið tilnefndir til fjöl­miðlaverðlauna um­hverf­is­ráðuneyt­is­ins fyrir Mengun með miðlum. Hana má sjá hér að neðan en útgáfan sem strákarnir sendu út í keppnina var á ensku og talsvert styttri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert