Starfsmaður hjúkrunarheimilisins Eirar í Grafarvogi greindist með kórónuveiruna í gær. Starfsmaðurinn var síðast í vinnu á sunnudagskvöld og hafa allir íbúar sem viðkomandi sinnti, sjö talsins, verið settir í sóttkví sem og fjórir starfsmenn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hjúkrunarheimilinu.
Til að gæta fyllsta öryggis hefur allri deildinni sem starfsmaðurinn vann á, 2. hæð A-húss, verið lokað fyrir heimsóknum meðan á sóttkví stendur.