Gætu þefað upp veiru innan skamms

Kórónuveiruhundurinn E.T. ásamt þjálfaranum sínum Anette Kare við störf á …
Kórónuveiruhundurinn E.T. ásamt þjálfaranum sínum Anette Kare við störf á flugvellinum í Helsinki. AFP

Hægt væri að byrja að nýta hunda við að þefa uppi Kórónuveiruna hér á landi innan fárra mánaða ef ákvörðun væri tekin um það. Þetta segir hundaþjálfarinn Jó­hanna Þor­björg Magnús­dótt­ir sem m.a. hefur þjálfað hunda í mygluleit. Hún er sannfærð um gagnsemi ferfætlinganna við að leita uppi veiruna. 

Fréttir af notkun hunda á flugvöllum í Finnlandi þar sem þeir þefa uppi veiru hjá komufarþegum til Hels­inki hafa vakið töluverða athygli. Anna Hielm-Bjorkm­an, vís­inda­maður hjá Há­skól­an­um í Hels­inki fer fyr­ir rann­sókn­arverkefninu og hún fullyrðir að þjálf­un hunda til að þefa veiruna uppi sé aug­ljós val­kost­ur í heimsfaraldrinum. Fjallað var um málið á mbl.is í gær.

„Mér finnst ekki spurning að þetta sé eitthvað sem ætti að skoða vel,” segir Jóhanna en fyrir ári síðan var fjallað um mygluleitarhundinn Hanz hér á mbl.is sem Jóhanna þjálfaði. Hún gerir ráð fyrir að það þyrfti ekki að taka lengri tíma en tvo til þrjá mánuði að hrinda verkefninu í framkvæmd. „Til þess þyrfti að setja saman lítið teymi vísindamanna og sérfræðinga ásamt hundaþjálfaranum,“ segir Jóhanna og segist jafnframt vita af hundum sem séu ákjósanlegir í verkefnið.

Í Finnlandi skima hundarnir komufarþega en Jóhanna segir það einungis eitt hlutverk sem þeir gætu sinnt. „Þeir gætu nýst í verslunarkjörnum eða fjölförnum stöðum. Ekki síst til að fara yfir yfirborsðfleti og tryggja að þeir séu veirulausir.“

Verið er að undirbúa hunda víða um heim í þeim tilgangi að auðvelda fólki lífið með Kórónuveirunni. Í Brasilíu, Argentínu, Belgíu og Sameinaða Arabíska furstadæminu.

Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má sjá schaeffer-hundinn Hanz þefa uppi myglu fyrir Jóhönnu. 


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert