Hvorki þykir tilefni til þess að herða né slaka á aðgerðum í Stykkishólmi þrátt fyrir þann fjölda kórónuveirusmita sem greinst hefur í bænum að undanförnu. Þetta er niðurstaða fundar viðbragðsteymis Stykkishólmsbæjar og aðgerðastjórnar almannavarna Vesturlands sem fram fór í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu bæjarins.
Síðasta sólarhring greindust tvö ný smit í Stykkishólmi og eru því 11 skráð tilfelli kórónuveiru hjá íbúum bæjarins og eru allir í reinangrun, þar af tveir sem taka út einangrun sína í Reykjavík.
Í dag fóru svo 11 einstaklingar í sýnatöku og er niðurstaða hennar ventanleg á morgun.
Eftirfarandi ráðstafanir eru enn í gildi í Stykkishólmi og segir á vefsíðu bæjarins að þær hafi reynst vel.
- Grunnskólinn í Stykkishólmi hefur tekið upp hólfaskiptingu líkt og gert var í vor. Skólinn opnar kl. 08:10
- Leikskólinn í Stykkishólmi hefur einnig tekið upp hólfaskiptingu, en starfstími leikskóla helst óbreyttur.
- Tónlistaskóli Stykkishólms heldur óbreyttu námi fyrir börn á grunnskólaaldri en hefur tekið upp fjarkennslu fyrir eldri nemendur.
- Dvalarheimili aldraðra hefur tímabundið lokað fyrir heimsóknir, en það á einnig við um búseturéttaríbúðir.
- Heilbrigðisstofnun Vesturlands lokar tímabundið fyrir heimsóknir á legudeild í Stykkishólmi.
- Íþróttamiðstöð/sundlaug Stykkishólmsbæjar leggur aukna áherslu á sóttvarnir.
- Amtsbókasafn Stykkishólms leggur aukna áhersla á sóttvarnir. Aðalinngangur er lokaður, en gengið er inn að aftan.
- Ráðhús Stykkishólmsbæjar og aðrar stofnanir loka tímabundið fyrir gestum.
- Félagsmiðstöðin X-ið hefur lagt niður starfsemi þar til línur skýrast.
- Snæfell hefur tímabundið lagt niður æfingar.