Stjórnendastöðum fækkað en engum sagt upp

Stöðum stjórnenda hjá Sjúkratryggingum Íslands verður fækkað samkvæmt nýju skipuriti en ekki er gert ráð fyrir að neinum verði sagt upp. Nýtt skipulag tekur gildi 1. janúar. 

Fram kemur í tilkynningu, að stjórn Sjúkratrygginga Íslands hafi sett stofnuninni langtímastefnu sl. sumar og er það í fyrsta sinn sem þar er gert.

„Á fundi stjórnar í gær, 24.september 2020, samþykkti stjórn nýtt skipurit sem byggist á nýrri stefnu. Þessari skipulagsbreytingu er ætlað að aðlaga stofnunina að þeim verkefnum sem henni eru ætluð samkvæmt lögum og heilbrigðisstefnu og jafnframt að bregðast við þeim ábendingum sem Ríkisendurskoðun hefur beint að stofnuninni,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir, að breytingin byggist á ítarlegri greiningar- og stefnumótunarvinnu innan stofnunarinnar þar sem styrkleikar og veikleikar hennar voru greindir. Allir starfsmenn komu að þeirri vinnu.

„Stöðum stjórnenda verður fækkað en ekki er gert ráð fyrir að neinum verði sagt upp. Nýtt skipulag tekur gildi 1.janúar 2021,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert