Stuðlar að sjálfbærri uppbyggingu

Frá vinstri: Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri LL, Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri …
Frá vinstri: Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri LL, Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SFF. Ljósmynd/Golli

Í dag undirrituðu Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, og aðilar sem fara fyrir hátt í 80% af eignum á íslenskum fjármálamarkaði „Viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar“. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 

Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), Landssamtök lífeyrissjóða (LL) og Forsætisráðuneytið unnu að mótun hennar í víðtæku samráði við fulltrúa helstu aðila á fjármálamarkaði.

Stuðla að sjálfbærri þróun

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að tekið verði tillit til alþjóðlegra skuldbindinga Íslands og þeirra viðmiða sem íslensk stjórnvöld hafa sett sér. Þar má m.a. nefna markmiðið um kolefnishlutlaust Ísland eigi síðar en árið 2040. 

„Samfélagslega ábyrg hugsun og sjálfbær þróun er rauður þráður í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Við viljum að stjórnvöld, fyrirtæki og stofnanir axli ábyrgð og hafi uppbyggileg áhrif á samfélagið. Til þess þarf að innleiða sjálfbærni og samfélagsábyrgð í allan rekstur. Sú hugmyndafræði mun skapa ný tækifæri og verða aflgjafi marghàttaðra framfara,“ segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert