Sýnir hverju hægt er að áorka

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. mbl.is/Eggert

Ísland hefur lagt fram ályktun í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna um samstarf stjórnvalda á Filippseyjum við skrifstofu mannréttindafulltrúa SÞ um úrbætur í mannréttindamálum þar í landi.

Ályktunin er lögð fram í samvinnu við filippseysk stjórnvöld sem skuldbinda sig til að vinna með mannréttindafulltrúanum að umbótum. Ályktunin verður tekin til atkvæða í mannréttindaráðinu í næstu viku en þess má vænta að hún verði samþykkt samhljóða, að því er kemur fram í tilkynningu.

Ísland beitti sér í júlí 2019 fyrir samþykkt ályktunar um mannréttindaástandið á Filippseyjum. Með henni lýsti mannréttindaráðið formlega yfir áhyggjum af ástandinu í landinu, hvatti stjórnvöld til að stöðva aftökur á fólki án dóms og laga í nafni herferðar gegn fíkniefnum og draga þá til ábyrgðar sem stæðu fyrir slíku. Enn fremur var mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) falið að gera skýrslu um stöðu mannréttindamála á Filippseyjum.

Frá nýlegum fundi í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna.
Frá nýlegum fundi í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. AFP

Umrædd skýrsla var lögð fram í mannréttindaráðinu í sumar og staðfesti hún að fullt tilefni var til að taka málefni Filippseyja á dagskrá. Enda þótt stjórnvöld á Filippseyjum hafi brugðist hart við samþykkt ályktunarinnar sumarið 2019 og hafnað niðurstöðum skýrslunnar í sumar, komst á samtal milli fastanefnda Íslands og Filippseyja í Genf. Niðurstaða þess er sameiginleg ályktun þessara ríkja í ráðinu sem lögð var fram í gær. 

„Við höfum gagnrýnt framgöngu stjórnvalda á Filippseyjum í mannréttindamálum. Á hinn bóginn skiptir máli að eiga samráð og samtöl við þau ríki sem til skoðunar eru hverju sinni hjá mannréttindaráðinu, ekki síst ef þau virðast tilbúin til slíks samtals og eru reiðubúin til að vinna að úrbótum í samvinnu við stofnanir Sameinuðu þjóðanna,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í tilkynningunni.

Þótt ályktunin hafi verið unnin með Filippseyjum tekur hún tillit til athugasemda annarra ríkja í óformlegum samningaviðræðum um textann sem undanfarið hafa farið fram í Genf.

„Þetta sýnir okkur hverju hægt er að áorka í alþjóðlegu samstarfi. Útkoman er mikilvægur áfangi því okkur hefur tekist að fá Filippseyjar til að gangast sjálf við ábyrgð á vandanum sem við blasir og úrlausnum hans. Jafnframt tryggjum við aukið hlutverk fyrir stofnanir Sameinuðu þjóðanna, þ.m.t. skrifstofu mannréttindafulltrúans,“ segir ráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert