Aðgerðirnar styðji aðeins atvinnurekendur og efnafólk

Sólveig Anna Jónsdóttirm formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttirm formaður Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Efling – stéttarfélag lýsir vonbrigðum með aðgerðapakkann sem ríkisstjórnin kynnti í morgun.

„Aðgerðirnar eru að sögn hugsaðar „til stuðnings lífskjarasamningunum“ en þær aðgerðir sem hönd er á festandi í yfirlýsingunni styðja þó eingöngu atvinnurekendur og efnafólk, láta undan óeðlilegum þrýstingi þeirra og hlunnfara vinnandi fólk,“ segir í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

Þar kemur fram að í pakkanum sé ekki að finna neinar haldbærar efndir á loforði stjórnvalda í tengslum við lífskjarasamningana um févíti vegna launaþjófnaðar. Þar sé um að ræða einfalt réttlætismál sem kosti ríkissjóð ekkert.

„Þau frumvarpsdrög sem Efling hefur séð um efnið eru gagnslaus. Svo virðist sem ríkisstjórnin hyggist láta þjóðarskömm íslensks vinnumarkaðar, refsilausan launaþjófnað atvinnurekenda, viðgangast til frambúðar,“ segir í tilkynningunni.

„Nýtt loforð ríkisstjórnarinnar um skattaafslátt til stórefnafólks sem stendur í hlutabréfakaupum vekur algjöra furðu. Sú aðgerð gengur þvert á markmið skattkerfisbreytinga sem lofað var í tengslum við lífskjarasamninganna,“ segir þar einnig.

Fram kemur að ríkisstjórnin hafi látið Samtök atvinnulífsins beita sig hótunum um uppsögn kjarasamninga sem aldrei hafi verið innistæða fyrir. „Fjöldi fyrirtækja um allt land eru í ágætum rekstri og ekki á þeim buxum að hefja ófrið um allan vinnumarkaðinn. Í stað þess að halda sjálfsvirðingu sinni og verja hagsmuni almennings lætur ríkisstjórnin neyða sig til að ausa enn meira fé úr sjóðum hins opinbera til efnafólks og stöndugra fyrirtækja.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert