Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á bílastæði við Austurberg í apríl 2018, en samkvæmt ákæru sló maðurinn annan mann með vasaljósi eða annarskonar járnáhaldi í höfuðið. Þegar sá sem fyrir árásinni varð bar hendur fyrir höfuð sér var hann sleginn á ný með áhaldinu.
Samkvæmt ákæru málsins hlaut sá sem fyrir árásinni varð mar á enni og aftan á hnakkanum, heilahristing og eymsli yfir handarbak og úlnlið. Fer hann fram á 950 þúsund krónur í skaða- og miskabætur vegna árásarinnar.