Aðeins örfáum gestum boðið

Frá setningu Alþingis í september í fyrra.
Frá setningu Alþingis í september í fyrra. mbl.is/Hari

Alþingi verður sett á morgun, fimmtudaginn 1. október, og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni.

Séra Ninna Sif Svavarsdóttir, sóknarprestur í Hveragerði og formaður Prestafélags Íslands, predikar og séra Elínborg Sturludóttir, prestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Dómorganistinn Kári Þormar leikur á orgel og Guðbjörg Hilmarsdóttir syngur við athöfnina.

Vegna kórónuveirufaraldursins verður aðeins örfáum gestum boðið til þingsetningarinnar að þessu sinni, að því er segir í tilkynningu. 

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

mbl.is/Hari

Strengjadúett skipaður þeim Auði Hafsteinsdóttur fiðluleikara og Bryndísi Höllu Gylfadóttur sellóleikara leikur „Intermezzo“ úr Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 151. löggjafarþing. Þá leikur strengjadúettinn „Eg vil lofa eina þá“ eftir Báru Grímsdóttur. Að því loknu flytur forseti Alþingis ávarp.

Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16:00 en þá verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2021 útbýtt.

Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi á RÚV. Einnig verður útvarpsútsending á Rás 1 frá messu og þingsetningu.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi þingsetningardags, kl. 19:30.

Fyrsta umræða um fjárlagafrumvarp 2021 og fyrri umræða um fjármálaáætlun verða aðalmál 2. viku þingsins og hefst umræðan mánudaginn 5. október, segir enn fremur í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert