Jólabjórinn óvenju snemma á ferðinni í ár

Mikil stemning er jafnan þegar jólabjórinn kemur í sölu á …
Mikil stemning er jafnan þegar jólabjórinn kemur í sölu á börum og í Vínbúðum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ákveðið hefur verið að hefja sölu á jólabjór í Vínbúðunum einni viku fyrr en verið hefur síðustu ár. Fram til þessa hefur salan jafnan hafist í kringum 15. nóvember en að þessu sinni hefst hún fimmtudaginn 5. nóvember. 

„Helsta ástæðan er að ástandið í samfélaginu er sérstakt. Með því að færa upphaf sölunnar fram um eina viku eru Vínbúðirnar að færast nær því tímabili þar sem sala hefur almennt hafist á börum, veitingahúsum og í Fríhöfninni,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR.

Jólabjórinn hefur notið mikilla vinsælda hér á landi og hefur tegundum fjölgað með hverju árinu. Að sögn Sigrún er von á tæplega 100 tegundum af jólabjór þetta árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert