Fjárlagafrumvarp næsta árs kynnt

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Hari

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun kynna fjárlagafrumvarp ársins 2021 og fjármálaáætlun fyrir árin 2021-2025 á blaðamannafundi í fjármálaráðuneytinu klukkan 10.

Mun Bjarni fara yfir helstu forsendur frumvarpsins og svara spurningum blaðamanna.

Um er að ræða síðasta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili. Því verður útbýtt á Alþingi á fyrsta fundi nýs þings, sem sett verður í dag.

Mbl.is mun fylgjast með kynningu fjármálaráðherra og greina frá helstu niðurstöðum fjárlagafrumvarpsins í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert