Mögulegt met í sjúkraflutningum

Her má sjá nýjan gulan sjúkrabíl. Fleiri eru væntanlegir.
Her má sjá nýjan gulan sjúkrabíl. Fleiri eru væntanlegir. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór samtals í 141 sjúkraflutning á dag- og næturvaktinni í gær. Í Facebook-færslu slökkviliðsins kemur fram að mögulega sé um met að ræða. 25 af þessum sjúkraflutningum voru forgangsverkefni og 18 vegna COVID-19. Einnig var slökkviliðið kallað út í átta útköll. 

106 af sjúkraflutningunum voru á dagvaktinni og 35 á næturvaktinni. 

„Hvað veldur þessum fjölda er erfitt að segja en kannski er þetta spenningur fyrir nýju gulu sjúkrabílunum sem við erum að taka í notkun, næstu daga bætast sjö nýir bílar í flotann hjá okkur“, segir í færslu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert