Þrettán á spítala vegna COVID-19

Á smitsjúkdómadeild Landspítalans í Fossvogi.
Á smitsjúkdómadeild Landspítalans í Fossvogi.

13 sjúklingar eru inniliggjandi vegna COVID-19, þar af tveir á gjörgæslu og báðir í öndunarvél. Í gær voru tíu inniliggjandi á Landspítala svo þeim hefur nú fjölgað nokkuð. 572 sjúklingar eru í eftirliti COVID-19 göngudeildar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Landspítala. 

95 starfsmenn spítalans eru í sóttkví A og 37 í einangrun. 

„Landspítali er á hættustigi vegna faraldurs COViD-19. Viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsótta hefur því verið virkjuð og funda viðbragðsstjórn og farsóttanefnd funda daglega. Allar ákvarðanir vegna sóttvarna og takmarkana þeim tengdar eru teknar á þeim miðlæga vettvangi og eru starfsmenn og stjórnendur hvattir til að kynna sér nýjustu ákvarðanir á degi hverjum á innri upplýsingavef spítalans“, segir í tilkynningunni. 

Í tilkynningunni eru einnig nokkrar áréttingar. Þær eru eftirfarandi:

1. Vegna hins vaxandi þunga sem er í starfsemi Landspítala af Covid-19 og þeirrar staðreyndar að spítalinn er á hættustigi er nú unnið að ýmsum leiðum til að auðvelda breytingar á starfseminni, þar með talið að búast má við tilflutningi starfsmanna í samræmi við þetta.

2. Fjórum af sjö skurðstofum við Hringbraut verður á næstu dögum lokað sem og tveimur af þremur skurðstofum á kvennadeild. Alls eru því 9 af 19 skurðstofum spítalans lokaðar en áfram er bráðaaðgerðum og aðkallandi aðgerðum sinnt.

3. Smitsjúkdómadeild A7 er nú einungis farsóttareining og unnið er að skipulagi á lungnadeild svo unnt verði að taka við Covid-19 sjúklingum þar.

4. Svefndeild á A6 hefur verið lokað en göngdeildarþjónusta við þann sjúklingahóp er áfram á B3.

5. Dagdeild B7 verður flutt á B1 og fjölgar legurýmum á deild B7 í kjölfarið.

6. Brýnt er fyrir starfsmönnum og gestum að bera ávallt andlitsgrímur sem Landspítali útvegar í öllum rýmum spítalans.

7. Mikilvægt er að starfsmenn komi ekki til vinnu ef vart verður einhverra einkenna sem kunna að benda til Covid-19 sýkingar. Starfsfólki er bent á að hafa samband við starfsmannahjúkrun Landspítala ef einkenna verður vart.

8. Minnt er á tilmæli sóttvarnalæknis að þeir sem geta sinni vinnu sinni að heiman. Ákvörðun um þetta er alltaf tekin í samráði við næsta yfirmann og hvatt er til stöðufunda með starfsfólki í upphafi og við lok dags.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert