Upplýsingafundurinn hefst klukkan 15

Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans verður gestur fundarins í dag.
Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans verður gestur fundarins í dag. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 15:00 í dag en ekki klukkan 14 líkt og venjulega. Er það gert vegna setningar Alþingis klukkan 14.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi. Gestur fundarins verður Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert