Vilja byggja flugvöllinn upp

Flugturn og -stöð á Egilsstöðum.
Flugturn og -stöð á Egilsstöðum. mbl.is/Sigurður Bogi

Unnið verður með Isavia og ríkisvaldinu að uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar svo hann uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til hans sem fyrsta varaflugvallar Keflavíkurflugvallar en um leið hugað að framtíðarmöguleikum vallarins varðandi vöruflutninga og millilandaflug.

Þetta er eitt af fjölmörgum áhersluatriðum sem koma fram í málefnasamningi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi.

Oddvitar framboðanna, Gauti Jóhannesson, D-lista, og Stefán Bogi Sveinsson, B-lista, undirrituðu í gær málefnasamninginn. Hann var undirritaður og kynntur rafrænt til að leggja áherslu framboðanna á að þróa rafræna stjórnsýslu þar sem fulltrúar hvaðanæva úr sveitarfélaginu geti tekið virkan þátt í starfsemi þess. Einnig verða áhrif íbúanna tryggð með heimastjórnum í öllum gömlu sveitarfélögunum.

Bryddað er upp á fjölmörgum málum. Aðeins rúmlega hálft annað ár er til stefnu og viðurkenndu oddvitar meirihlutans að ekki tækist að ljúka þeim öllum en mikilvægt væri að hefjast handa.

Egilsstaðaflugvöllur umkringdur flóðvatni.
Egilsstaðaflugvöllur umkringdur flóðvatni. mbl.is/RAX
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert