Vonast eftir samstöðu um stjórnarskrárbreytingar

Allt gert klárt í gær fyrir þingsetninguna.
Allt gert klárt í gær fyrir þingsetninguna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alþingi, hið 151. í röðinni, verður sett í dag með hefðbundinni dagskrá. Undantekningin er þó að færri gestum er boðið til þingsetningar vegna sóttvarnareglna almannavarna.

Viðmælendur blaðsins á þingi segja að fjárlögin og efnahagsaðgerðir stjórnvalda vegna kórónuveirunnar verði stóra málið við upphaf þingsins. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína í kvöld.

Í samtali í Morgunblaðinu í dag segist Katrín síður eiga von á mikilli andstöðu við aðgerðirnar. Hún vonast einnig eftir breiðri sátt um að taka breytingar á stjórnarskránni til afgreiðslu á þinginu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert