Sjálfbær þróun leiðarljós í orkustefnu til 2050

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnti nýja …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynnti nýja langtíma orkustefnu fyrir Ísland til 2050 í Perlunni í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ný langtíma orkustefna Íslands til ársins 2050 var kynnt af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í dag. Yfirskrift orkustefnunnar er „Orkustefna til ársins 2050: Sjálfbær orkuframtíð“ og segir ráðherra að með þessu sé gætt hagsmuna núverandi og komandi kynslóða.

Stefnan var unnin af fulltrúum frá öllum flokkum á Alþingi, fjórum fulltrúum ráðuneyta og í samráði við hagsmunaaðila.

Sett eru fram 12 meginmarkmið í orkustefnunni og eru þau eftirfarandi:

  • Orkuþörf samfélags er ávallt uppfyllt
  • Innviðir eru traustir og áfallaþolnir
  • Orkukerfið er fjölbreyttara
  • Ísland er óháð jarðefnaeldsneyti; orkuskipti eru á landi, á hafi og í lofti
  • Orkunýtni er bætt og sóun lágmörkuð
  • Auðlindastraumar eru fjölnýttir
  • Gætt er að náttúruvernd við orkunýtingu
  • Umhverfisáhrif eru lágmörkuð
  • Nýting orkuauðlinda er sjálfbær
  • Þjóðin nýtur ávinnings af orkuauðlindunum
  • Orkumarkaður er virkur og samkeppnishæfur
  • Jafnt aðgengi að orku er um allt landið

„Þegar við skoðum meginmarkmiðin tólf sjáum við að við eigum mörg óunnin verkefni. Þar liggja gríðarleg sóknarfæri,“ er haft eftir Þórdísi í tilkynningu frá ráðuneytinu, en hún segir næstu skref vera að setja fram árangursvísa og aðgerðir sem byggja á markmiðum stefnunnar.

Stefnt er að sjálfbærri orkuframtíð í orkustefnu fyrir Ísland til …
Stefnt er að sjálfbærri orkuframtíð í orkustefnu fyrir Ísland til 2050.

Í starfshópnum sátu:

  • Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, formaður, skipuð af ráðherra
  • Páll Jensson, varaformaður, skipaður af ráðherra
  • Halla Signý Kristjánsdóttir, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokksins
  • Albertína F. Elíasdóttir, tilnefnd af þingflokki Samfylkingarinnar
  • Árni V. Friðriksson, tilnefndur af þingflokki Miðflokksins
  • Kristín Vala Ragnarsdóttir, tilnefnd af þingflokki Pírata
  • Kolbeinn Óttarsson Proppé, tilnefndur af þingflokki Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs
  • Njáll Trausti Friðbertsson, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokksins
  • Þorsteinn Víglundsson, tilnefndur af þingflokki Viðreisnar
  • Ólafur Ísleifsson, tilnefndur af Flokki fólksins (Guðmundur Borgþórsson var tilnefndur í hans stað en starfaði ekki með hópnum)
  • Magnús Júlíusson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Harpa Þórunn Pétursdóttir, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
  • Brynhildur Davíðsdóttir, tilnefnd af umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
  • Ólafur Kr. Hjörleifsson, tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu

Erla Sigríður Gestsdóttir, starfsmaður starfshópsins, var tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Kristinn Hjálmarsson ráðgjafi starfaði einnig með hópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert