61 nýtt smit

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Alls greind­ist 61 nýtt kór­ónu­veiru­smit inn­an­lands í gær, þar af 55 í ein­kenna­sýna­tök­um, fimm í sótt­kví­ar- og handa­hófs­skimun og eitt á vegum Íslenskrar erfðagreiningar. Tekin voru 1.800 sýni. Af þeim sem greindust voru 22 í sóttkví en 39 utan sóttkvíar.

Tvö smit greind­ust við landa­mær­in og er mót­efna­mæl­ing­ar beðið. 

652 eru í ein­angr­un með virkt smit og 1.608 í sótt­kví. Í skimun­ar­sótt­kví eru 1.577 manns, þangað fara þeir sem koma til landsins.

11 eru á sjúkra­húsi og fækkar um tvo frá í gær, þar af þrír á gjörgæslu og tveir þeirra í öndunarvél. Fólkið sem liggur á Landspítala vegna COVID-19 er á breiðu aldursbili. Sá yngsti er á þrítugs­aldri og sá elsti á sjö­tugs­aldri. Þeir sem eru á gjörgæslu eru á sextugs- og sjötugsaldri.

Nýgengi innanlandssmita, fjöldi nýrra smita síðustu tvær vikur á hverja 100.000 íbúa, er 145,9 og lækkar lítillega milli daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert