„Á sér enga stoð í raunveruleikanum“

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. mbl.is/Arnþór

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, segir það ekki koma til greina að setja á fót flóttamannabúðir á Íslandi.

Bjarkey steig í ræðustól Alþingis í morgun og vísaði til orðaskipta Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins.

„Til að gera langa sögu stutta benti ráðherrann á að í löndum í kringum okkur er sums staðar sá háttur á að fólk sem bíður brottvísunar er vistað á afmörkuðum brottvísunarsvæðum á meðan það bíður brottvísunar,“ sagði Bjarkey.

„Það sem um ræðir er að sjálfsögðu ekkert annað en flóttamannabúðir eða jafnvel bara fangelsi og það kemur ekki til greina að setja slíkt á laggirnar af hálfu þingflokks Vinstri-grænna.“

Afstaða Vinstri-grænna myndi ekki breytast

Benti hún á að Áslaug Arna hefði sagt að lagabreytingu þyrfti til að slíkt yrði að raunveruleika.

„Og ég leyfi mér að fullyrða að slíkt frumvarp kæmist ekki í gegnum minn þingflokk, enda er slíkt mál hvergi að finna á þingmálaskrá ráðherrans og ekkert sem hún sagði gefur til kynna að það eigi að hrinda slíku í framkvæmd. Þótt þingmálaskrár séu oft uppfærðar með tilliti til stöðunnar í samfélaginu myndi afstaða Vinstri-grænna ekki breytast ef slíkt mál birtist þar,“ sagði Bjarkey.

„Umræðan sem hefur skapast í kjölfarið, að um sé að ræða stefnu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, á sér heldur enga stoð í raunveruleikanum,“ bætti hún við og vísaði svo til stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, þar sem segir að aldrei hafi verið fleiri á flótta vegna stríðsátaka, ofsókna og umhverfisvár.

Fráleit hugmynd og kemur ekki til greina

„Ísland mun leggja sitt af mörkum til lausnar flóttamannavandanum og taka á móti fleiri flóttamönnum. Mannúðarsjónarmið og alþjóðlegar skuldbindingar verða lögð til grundvallar og áhersla á góða og skilvirka meðhöndlun umsókna um alþjóðlega vernd. Auk þess verður tryggð samfella í þjónustu og aðstoð við þá sem fá slíka vernd. Þverpólitískri þingmannanefnd verður falið að meta framkvæmd útlendingalaga og eftir atvikum endurskoða þau,“ reifaði Bjarkey úr stjórnarsáttmálanum.

„Nú vill svo til að ég sit í téðri þingmannanefnd, eins og fulltrúar allra flokka á Alþingi. Ég hef áður sagt og segi enn að þar mun ég berjast fyrir því að fólk sem hingað sækir fái sanngjarna, réttláta og mannúðlega málsmeðferð.

Ég vona að aðrir þingmenn hér inni, og sérstaklega þeir sem hafa tjáð sig um þessi orð dómsmálaráðherra, muni standa með mér í því, því að þetta er fráleit hugmynd og hún kemur ekki til greina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert