Stór aurskriða féll í Eyjafirði

Aurskriða féll úr Hleiðargarðsfjalli fyrir ofan Gilsá 2 í Eyjafirði.
Aurskriða féll úr Hleiðargarðsfjalli fyrir ofan Gilsá 2 í Eyjafirði. Ljósmynd/Lögreglan

Stór aurskriða féll í dag ofan við bæinn Gilsá 2 í Eyjafirði. Engan sakaði eftir því sem næst verður komist, en skriðan staðnæmdist um 100 metrum frá húsinu. Búseta er á bænum, en enginn var í húsinu þegar skriðan féll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Aurskriða féll úr Hleiðargarðsfjalli fyrir ofan Gilsá 2 í Eyjafirði.
Aurskriða féll úr Hleiðargarðsfjalli fyrir ofan Gilsá 2 í Eyjafirði. Ljósmynd/Lögreglan

Þá segir jafnframt að fleiri smærri skiður hafi fallið og heyrðust drunur frá skriðusárinu sem eru merki um að grjót sé enn að falla. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á staðnum og von er á sérfræðingi frá Veðurstofu Íslands til að meta aðstæður. Ekki er útilokað að fleiri skriður geti fallið.

Aurskriðan stöðvaðist um 100 metra frá íbúðahúsinu að Gilsá 2.
Aurskriðan stöðvaðist um 100 metra frá íbúðahúsinu að Gilsá 2. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert