Nýr meðferðarkjarni steyptur í nóvember

Landspítali. Byggingin verður ein sú stærsta á Íslandi þegar hún …
Landspítali. Byggingin verður ein sú stærsta á Íslandi þegar hún rís.

Byrjað verður að steypa upp nýtt þjóðarsjúkrahús á lóð Landspítalans í næsta mánuði. Byggingarfélagið Eykt sér um verkið, en áætlað er að það muni kosta tæpa 8,7 milljarða króna og vera þrjú ár í byggingu.

Að verki loknu verður byggingin ein stærsta bygging Íslands, eða um 70.000 fermetrar og verður sjúkrahúsið tekið í notkun árið 2025-2026, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

„Meðferðarkjarninn verður stór bygging með fjölþætta starfsemi,“ segir á heimasíðu Nýs spítala um verkefnið, en áætlað er að þar verði rými fyrir alls 480 sjúklinga.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert