Einbýlishús Jóhannesar Felixsonar við Markarflöt í Garðabæ verður sett á uppboð hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudaginn. Landsbankinn gerir kröfu um uppboðið en Jói Fel. er aðeins skráður fyrir 60% eignarhlut í húsinu þessa stundina.
Bakarískeðja Jóa var lýst gjaldþrota fyrir nokkrum vikum eftir gjaldþrotabeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Sjóðurinn á kröfu í búið vegna stórrar vangreiddrar skuldar fyrirtækisins við hann.
Bakarameistarinn, stærsti keppinautur gömlu bakarískeðjunnar, keypti þrotabúið í lok september og til stendur að fyrirtækið komi upp rekstri í gömlum útibúum Jóa Fel.
Jói flutti inn í einbýlið sem nú á að selja í upphafi síðasta árs og hér má sjá umfjöllun Smartlandsins á mbl.is um heimilislífið.