„Þau voru stórkostleg“

Jóhanna S. Sigurðardóttir og Finnur Einarsson voru virk í starfi …
Jóhanna S. Sigurðardóttir og Finnur Einarsson voru virk í starfi HOG Chapter Iceland, samtökum eigenda Harley Davidson-mótorhjóla á Íslandi. Ljósmynd/Facebook

Heiðrún Finnsdóttir missti föður sinn og stjúpmóður í mótorhjólaslysi á Kjalarnesi í sumar. Á veg­arkafl­an­um sem slysið varð á var nýtt mal­bik sem var afar hált og stóðst ekki kröf­ur Vega­gerðar­inn­ar. Heiðrún segir Vegagerðina hafa vitað af hættunni sem þarna var. 

Finn­ur Ein­ars­son og Jó­hanna S. Sig­urðardótt­ir létust í slysinu, en parið var á ferð á mótor­hjóli þegar það kom inn á nýmal­bikaðan veg á Kjal­ar­nesi. Komið hef­ur fram að yf­ir­lögn­in hafi ekki upp­fyllt skil­yrði og var mun hálla á veg­in­um en vænta mátti og kröf­ur eru gerðar um. 

Heiðrún var gestur Kastljóss í kvöld þar sem hún ræddi um slysið. 

„Þau voru stórkostleg. Hún var einhver fallegasta manneskja sem ég þekki. Alltaf svo yndisleg og fín til fara og hún var svona heldur hógværari en pabbi. Og hún var eiginlega hjartað og svona hlýjan. En pabbi, það fylgdi honum svolítill hávaði, mikill húmoristi og fór mikið fyrir honum, fólk tók eftir honum alls staðar þar sem hann kom. Hann var vinamargur og vel liðinn. Þeir sem hann kynntist urðu bara vinir hans og hann átti þá alla sína tíð,“ sagði Heiðrún um föður sinn og stjúpmóður. 

Þetta er fólk í blóma lífsins“

Finnur var 54 ára og Jóhanna 53 ára þegar þau létust. 

„Þetta er alls ekki hár aldur, ekki í dag. Þetta er fólk í blóma lífsins,“ sagði Heiðrún. 

Heiðrún segir að Jóhanna og Finnur hafi verið á leiðinni heim úr Vestfjarðarferð þegar slysið varð. 

„Ég fékk símtal frá rannsóknarlögreglunni og þar kynnir sig lögreglumaður og þá bara vissi ég þetta. Ég vissi um leið að pabbi væri dáinn. Ég stend inni í Krónunni í Lindum þegar símtalið kemur og var með strákinn minn og manninn minn með mér og maðurinn minn hann bara sér að það er eitthvað mikið að því ég snarstoppa. Lögreglumaðurinn kynnir sig og biður mig um að koma á heimili pabba og ég neita því nema hann segi mér hvort að pabbi sé dáinn. Sem hann náttúrulega vill ekki gera í símann... en ég næ því upp úr lögreglumanninum að pabbi minn sé dáinn og það var allt sem ég þurfti að vita, ég vissi að það var mótorhjólaslys, það var bara engin önnur útskýring á að pabbi minn væri dáinn,“ segir Heiðrún. 

Vegagerðin hefur ekki haft samband

Heiðrún segist ekki hafa áttað sig strax á því að Jóhanna hafði einnig látist. Það hafi ekki verið fyrr en í leigubílnum á leiðinni á heimili Jóhönnu og Finns að hún heyrði í fréttum að tveir einstaklingar höfðu verið á hjólinu þegar slysið varð. Hún segist hafa haldið í vonina en að hún hafi ekki varað lengi. 

Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, hefur sagst ekki í nokkr­um vafa um að bana­slysið verði til þess að breyta verk­ferl­um í vega­mál­um. 

Lög­reglu og Vega­gerð bár­ust fjöl­marg­ar ábend­ing­ar um að akst­ursaðstæður á veg­kafla á Vest­ur­lands­vegi á Kjal­ar­nesi væru vara­sam­ar áður en slysið varð. Þá er ljóst að yf­ir­lögn á veg­arkaflanum upp­fyllti ekki skil­yrði að mati Vega­gerðar­inn­ar. 

Heiðrún segir engan frá Vegagerðinni hafa haft samband við sig eða systkini sín til að bjóða aðstoð eða afsökunarbeiðni vegna slyssins, en Vegagerðin hefur þó beðist afsökunar í fjölmiðlum. 

Vegagerðin vissi vel af hættunni sem þarna var sem og verktakar. Loftorka Reykjavík ehf. hefur starfað við þetta í...

Posted by Heiðrún Finnsdóttir on Föstudagur, 9. október 2020
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert