EFA ekki afhent í Hörpu í ár

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í Hörpu í desember árið 2022 …
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í Hörpu í desember árið 2022 en ekki 2020 eins og til stóð. mbl.is/Árni Sæberg

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða ekki afhent í Hörpu í desember á þessu ári, eins og til stóð, heldur árið 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Örnu Schram, sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg. 

„Verðlaunahátíð Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna fer fram í Reykjavík 2022 en ekki í desember í ár eins og til stóð, vegna versnandi ástands heimsfaraldursins COVID-19 í Evrópu. Um er að ræða viðamikið samstarfsverkefni ríkis og borgar við Evrópsku kvikmyndaakademíuna (EFA) í Berlín en að því koma meðal annars Harpa og RÚV. Stafrænni athöfn verður streymt og sjónvarpað beint frá Berlín 12. desember 2020,“ segir í tilkynningunni. 

Franska leikkonan Juliette Binoche hlaut heiðursverðlaun EFA í Berlín í …
Franska leikkonan Juliette Binoche hlaut heiðursverðlaun EFA í Berlín í fyrra. AFP

Glæsileg hátíð eftir tvö ár

Haft er eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, að haldin verði glæsileg og fjölbreytt hátíðardagskrá til heiðurs evrópskum kvikmyndum en bara ekki í ár þar sem nú séu óvenjulegir tímar sem kalli á sveigjanleika. „Þetta er geysilega spennandi tækifæri fyrir íslenska kvikmyndamenningu og kvikmyndageirann hér á landi og við munum nýta það vel,“ er haft eftir Lilju. 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að tilhlökkun hafi ríkt fyrir að taka á móti erlendum gestum í ár. „En þetta er besti kosturinn í stöðunni í ljósi heimsfaraldursins. Það er ánægjulegt að samkomulag hafi náðst um að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verði haldin í Reykjavík að tveimur árum liðnum. Þá getum við einbeitt okkur alfarið að því að undirbúa glæsilega hátíð og hliðarviðburði sem við getum nýtt í markaðssetningu á menningarborginni Reykjavík en ekki síður í þágu íslenskrar kvikmyndagerðar og skapandi greina almennt,“ er haft eftir Degi í tilkynningunni. 

Þungbær ákvörðun 

Mike Downey, formaður EFA, segir ákvörðunina um að færa verðlaunahátíðina á Íslandi til ársins 2022 hafa verið þungæra en tekna af ábyrgð og umhyggju fyrir gestum hennar. „Við hjá EFA ásamt vinum okkar á Íslandi erum vonsvikin yfir því að ná ekki hittast í Reykjavík á þessu ári. Mikilli sköpunargáfu, ástríðu og orku hefur verið varið úr öllum áttum við skipulagningu verðlaunakvöldsins og kröftugt teymi unnið að því hörðum höndum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að öllu þessu er hægt að viðhalda og samstarf okkar mun halda áfram með það að markmiði að halda enn skemmtilegri hátíð til heiðurs evrópskrar kvikmyndagerðar á Íslandi í desember árið 2022, þegar heimurinn verður vonandi búinn að sigrast á COVID-19. Við gleðjumst einnig yfir því að EFA-skógurinn í Heiðmörk, sem við gróðursettum í júlí ásamt Skógræktarfélagi Reykjavíkur og vinum okkar úr íslenska kvikmyndasamfélaginu, heldur áfram að vaxa. Trén 3.750 munu nú dafna í enn hreinna lofti og bíða endurkomu okkar eftir tvö ár,” er haft eftir Downey.

Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálsviðs Reykjavíkur.
Arna Schram, sviðsstjóri menningar- og ferðamálsviðs Reykjavíkur. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Rafræn hátíð í Berlín

„Evrópska kvikmyndaakademían vinnur nú nánar að útfærslu rafrænnar evrópskrar kvikmyndahátíðarviku í Berlín í ár samhliða verðlaunaafhendingarkvöldinu en rúmlega 3.800 meðlimir Evrópsku kvikmyndaakademíunnar munu áður greiða atkvæði um verðlaunin eins og endranær. Vegna heimsfaraldursins verða tilnefningarnar kynntar rafrænt þriðjudaginn 10. nóvember nk. í streymi,“ segir í tilkynningunni en tvær kvik­mynd­ir þar sem Íslend­ing­ar koma að fram­leiðslun á eru meðal þeirra 32  í fyrra for­vali til Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­anna í ár. Kvikmynd Rún­ars Rún­ars­son­ar, Berg­mál, og Between Heaven and Earth sem Eggert Ket­ils­son, Elísa­bet Rón­alds­dótt­ir og Fahad Falur Jabali fram­leiddu, eru þar ásamt fleir­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert