Lögreglan leitar manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar manns sem hún vill ná tali af vegna máls sem er til rannsóknar.

Í tilkynningu frá lögreglunni er maðurinn beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115, eða í síma 444-1000. 

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hermann.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Uppfært: Maðurinn er kominn í leitirnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert